En hvað það verður gaman á morgun klukkan hálf fimm sirka. þá er ég búinn í prófun, ég er farinn að skjálfa hlakka svo til. nenni varla að mæta í þetta próf. svo er bara massa djamm um helgina (amk laugardag) og svo flogið norður á mánudagsmorgun. jæja best að lesa meira það er svo gaman. ég er bara farinn að hlakka svolítið til jólana enda styttist í þau.
þá er maður kominn á fullt í prófin. búin með þrjú búið að ganga svona ágætlega bara ekkert allt of vel. ekkert að frétta nema ég fór í fimmtugsafmæli til systur pabba um daginn en gat ekki drukkið þar sem ég var bílstjóri ekkert ömulegra en það en jæja. er að fara í klippingu á eftir klukkan 17 það verður spennandi. ekkert gengur í jólagjafa kaupum handa Herdísi en ég redda því örugglega á endanum. bara 2 próf eftir og svo minningar athöfn jarðfræðahússins það verður klikkað stuð búumst við að húsið hrynji endanlega. jæja best að fara lesa smá um ferðamennsku og umhverfi það er svo gaman. Vanta far Norður 21.des eða 22.des ef einhver hefur áhuga á félagsskap.
já skrítin helgi hjá Himma, gerði ekki neitt en reyndi þó bara virkaði ekki.
Föstudagur: ég og Gummi skrifuðum ritgerð ásamt því að drekka bjór, var orðið frekar skemmtilegt í endan, fór svo til Herdísar og við vorum heima allt kvöldið. frekar skrýtið að vera svona heima á föstudagskvöldi hef ekki gert það lengi.
Laugardagur: skrapp með Ella og Vidda í Náttúrufræðahúsið þar sem hornsteinn var lagður. skoðuðum húsið og ég drakk tvö bjórglös. hitti svo Gumma og við héldum áfram í ritgerðinni. Video og snakk um kvöldið
Sunnudagur: fór með minni heittelskuðu í heimsókn til bróðir hennar að skoða nýja húsið hans og svo í afslöppun í smáralind til að skoða, sá ekkert sem mér datt í hug að gefa henni í jólagjöf en hún er búin að ákveða sig. Hvað á að gefa svona kærustum í jólagjöf???
Framundan læra, læra,læra laga til (mamma og pabbi að koma að gista yfir helgina) svo bara próf og læti
Hlakka geðveikt til 20des þá verður erfidrykkja jarðfræðahússins klikkað stuð og læti nánar auglýst síðar allir Jarð og landfræðingar velkomnir líka velunnarar hússins
Það var bara fínt hjá flugfélaginu á föstudaginn. Fullt af jólabjór og skemmtilegum spurningum vöknuðu upp hjá hressum ferðamálafræðinemum. Gott að þessar vísindaferðir eru búnar á árinu var alveg að fá nóg af þessu endalausa veseni. enda var ég kominn heim rétt eftir 3 aðfaranótt laugardags, frekar slæmt að mér að vera. En ábyrgðin farin að segja til sín ehehe.
fór svo í road-trip með bræðrunum Sigga og Sigþóri og unnustum þeirra á Sunnudaginn klukkan 11 sáum ísland í sinni bestu vætu. fórum alla leið í skóga og aftur til baka. Fínn sunnudagsrúntur.
Nú er bara að klára öll helvítis verkefnin sem maður geyir alltaf þar til á síðustu stundu svo mega prófin byrja.
ekkert annars framundan nema koktel-boð eða eitthvað á nk lau í náttúrufræðahúsinu í tilefni opnunar, einmitt það opnar aldrei, well áfram að hanga og reyna læra
Prófin nálgast og síðasta formlega djammið verður í kvöld. þá verður skellt sér í vísindaferð í Flugfélags Íslands og svo er skemmtanastjórinn kominn í kærkomið frí, nema kannski risa kveðjuhof jarðfræðahússins sem verður eftir próf.
jæja best að halda áfram með föstudaginn
Djöfull var gaman í Almennu verkfræðistofunni. Eftir ferðina ver svo ferðinni heitið aftur til fortíðar eða niðrí Jarðfræðahús sem við erum að fara missa bráðum í hendur þjóðminjasafnsins. þar var standandi party til svona 10 og þá fórum við á stúdentakjallaran að hlusta á KK það var bara helvíti gaman og örugglega skemmtilegra en að horfa á video með systur minni og skátanum, Ekki spyrja löng saga, held allavega að ég fari ekkert að hitta hana í bráð erftir að hafa neitað henni í þrígang um matarboð . Veit ekki afhverju hún þykist vera miðpunktur alheimsins, kannski því hún er alltaf ein, ég veit það ekki.
Ætla ekki að vera tala meira um hana hér vona bara að hún verði búinn að gleyma þessu fyrir jól. ef þið hittið hana leggið gott orð inn fyrir mig.
allavega gerði ekki neit í gær laugardag frekar skrítið. Las svo á mbl.is um að það hefði lítið verið að gerast í bænum í nótt, kannski það sé manni að þakka
Er svo að fara þrífa Jarðfræðahúsið núna í kvöld með strákunum það verður stuð. jæja skemmtið ykkur vel elskurnar ég er farinn að læra
Föstudagurinn
Vísindaferðin var fín á fösturdaginn kannski heldur mikið drukkið en það er allt í lagi stundum. ég og strákarninr í bekknum, semsagt viddi og Gummi byrjuðum í hádeginu á föstudaginn á nokkrum bjórum svo kom Gummi í heimsókn og við drukkum tollinn hans, Havana club 7 ára helvíti góður kokteill það. Þannig að við vorum orðnir helvíti hressir klukkan fimm þegar við lögðum af stað í flugmálastjórn. heimsóknin var stutt og svo tók Flugröst við með fullt af bjór. Farið var svo á kapital þar sem allir urðu enþá meira fullir og haldin var brake-dance keppni og allt, svo fullir voru allir. held ég hafi komið um klukkan fimm heim eftir helvíti mikið skrall með erlu að mig minnir.
Laugardagurinn
Vaknaði ekkert svo seint var ekkert svo timbraður. fór svo að hitta Gamla 4-f síðan úr menntaskóla. það var klikkað stuð allir enduðu á trúnó dauðans svo ég og Inga skelltum okkur á undan liðinu á Gaukinn sem er frekar laim staður verð ég að segja. eina ástæðan var eitthvað ma party og má segja að inga hafi dregið mig þangað inn. ég meina come on íraskinns var að spila. hitti svo restina af liðinu þar og fór svo að Hitta danna og gunna og matta sem var kominn úr að ofan þegar ég kom en hann entist ekki lengi eftir það. jæja svona var helgin í hnotskurn man ekki fleira. ég vill bara þakka öllum sem hittu mig um helgina fyrir og skila kveðju til restarinnar.
Fara svo ekki að koma próf, nei nei bara 2 vísindaferðir eftir...
Esjuferðinn gekk vel ekkert mál eða þannig. frekar hvasst og ískalt. er núna með kvef og sáran háls. Fór svo í Bláa lónið með Herdísi á lau það var æði. stjörnubjart og smá norðurljós, ekkert smá rómó
Framundan: Vísindaferð á fös í Flugmálastjórn djamm þar og svo eitthvað geim á laugardaginn vonandi hjá Gamla F-inu frá menntaskólanum. djöfulsins snilld væri að hitta það fólk svo eina kvöldstund og rifja upp gamla tíma og sjá hvernig við spjörum okkur í lífinu.
það styttist svo í jólinn og ég get ekki beðið að komast norður í snjóinn, Pabbi var að kaupa sinn annan snjósleða svo það ætti alveg að vera hægt að eiga rólegt jólafrí í sveitinni.
jæja frekar slappir tímar man ekki neitt sniðugt.
Jeminn eini hvað Inngangur að eigindlegum rannsóknum er svæfandi áfangi. ég held að heimsmet í hópkúri sé slegið hvern einasta miðvikudags morgun í sal 2 í háskólabíó. ástæðan fyrir því að ég er hér, Þessi áfangi er skylda. Mest pirrar mig að þurfa laba hingað þegar maður sofnar hvort eð er í tímanum. ég rak svo löppina í sætið mitt áðan. örugglega það merkilegasta sem hefur gerst í þessum tímum. Jæja ætla fara hætta áður en ég sofna.
Framundan: Esjuferð á Fös klukkann 13 með RTH Cleaning Service og svo bjór og Grillveisla. svo bjórkvöld á kapital um kvöldið. jæja tíminn búinn ég er farinn að drekkja mér í kaffi.
jæja þá er komið að smá pistli.
Föstudagurinn
héldum spilakvöld á Föstudaginn með Fjallinu, hef sjaldan liðið eins einmanna áður. nei nei það var allt í lagi. fórum svo á Kapital þar sem allir urðu ofurölvi. ég Hitti svo Danna, Gunna og Matta og við áttum saman helvíti skemmtilegt flipp sem verður ekki rætt frekar hér.
Laugardagurinn
Ég og Herdís ætluðum ekki að nenna upp úr sófanum þetta kvöld en létum okkur hafa það og skelltum okkur í útskriftarveilsu til örnu þar sem Erla Villi og Anton voru líka. Fórum svo á Vegamót og fleiri staði held ég hafi bara sjaldan hitt eins marga sem ég þekki.
Svo er maður bara farinn að myndast um hverja helgi á vegamótum, Hvað ætli Stulli sé farinn að halda um mann. En þarna er ég dulbúinn sem fimmti bítillinn að hugsa um hvaða drykk ég ætti að fá mér. Rússinn við hlið mér er Daníel nokkur.
Þriðjudagur
Sælt veri fólkið. Nú þegar námsferð innanlands er lokið tekir alvara lífsins við eða þannig fullt af verkefnum sem öll krefjast 97% athygli. en hvað það er gaman að vera í skóla ekki neinar áhyggjur af peningum og eiga allt lífið framundan, vá hvað ég veit ekkert hvað á ég á að skrifa um í dag. meira svona skrifað vegna pressu. held að umferð um bloggið mitt sé að fara vaxandi með hverjum deginum sem líður og ekki nenni ég að uppfæra teljarann.
Jæja námsferðin var geðveikt skemmtileg fyrir utan smá pirring í stelpunum í endan. Var svo einn heima á lau svo ég skellti mér til Stulla svo komu Arna, Erla, Sibba og einhver og við fórum á Vegamót (Kemur ekki á óvart) maður virðist alltaf fara þangað fyrst kannski útaf því að maður kemst fram fyrir röðina oh hvað ég elska það engin helvítis röð. Veit ekki afhverju en ég fór líka fram fyrir röðina á Hverfisbarnum sem er nú einn leiðinlegasti bar í bænum held ég bara.
Kíkti á Kill Bill í gær með Herdísi, æðisleg mynd bjóst ekki við svo miklu en gekk allsæll út. Náði mér svo í soundtrackið úr henni í dag og sit nú og hlusta á það ásamt því að læra.... já já. Úff er að hrynja niður í þreytu eftir langan og skemmtilegan dag.
Setti myndir úr námsferðinni inn á heimasvæði mitt hjá HI http://www.hi.is/~hilmark endilega kíkkið þangað þeir sem hafa áhuga.
Í námsferðinni Fæddist ný ofurhetja sem berst fyrir föðurlandið á föðurlandinu einu saman. Íþróttaálfar sem dreifa rusli um hálendi íslands og allir sem stunda Akstur utan vega gætið ykkar. Fjallsmaðurinn er þarna úti.
GæsirÚff hvað er erfitt að mæta í skólan í fyrirlestrarfríi. En félagsvísindabraut hefur sýnir enga miskun, ferðamálafræðinemar nýttu samt þetta tækifæri og ræddu ýmis málefni eins og ferðalag morgundagsins og hvað ætti að taka mikið af áfengi með. eftir tíma var ég að labba fyrir utan háskólabíó. Ekkert svo merkilegt við það en þegar ég var farin að huga að heimför flaug gæsahópur yfir mig og búmm ein gæsin flaug á ljósastaur. frekar fyndið en hún hrapaði ekki heldur hélt uppteknum hætti og flaug á braut. Ég og Viddi einkaritarinn minn hlógum eins og vitleysingar en fengum svo samviskubit því greyið gæsin hefur gert sig að algjöru fífli því á túninu sátu hundruð gæsa. Þær virtust reyndar ekki mikið kippa sig upp við þetta. Kannski þetta sé bara nokkuð algengt hjá þeim. Jæja námsferð á morgun, rútuferð dauðans og dagbókarvinna. Afhverju getur kennarinn ekki bara lesið bloggið. Jæja ætla reyna plögga eina Vísó og leggja mig fyrir amstur dagsins sjáumst hress, kem heim á lau. kannski maður skelli einn af mynd af sér með fyrir aðdáendurnar
Mynd tekin á fös á Ölveri eftir vísindaferð í Ámuna
Áman
ég held ég hafi bara sjaldan drukkið eins stíft. Vísó í Ámuna í gær ekkert smá mikið vel veitt. settum nýtt staup met hjá Ámuni 27 stöp geri aðrir betur, til hamingju Stefán, mig langar ekki til að vita hvernig þér líður í dag. Annars ég bara ágætur er að fletta í gegnum myndirnar og rifja upp kvöldið. jújú þetta lítur allt ágætlega út. verst hvað ég var mikið að syngja karaoke held ég hafi teki 4 lög eða eitthvað svoleiðis. Já maður er fjölhæfur ekki bara model heldur líka söngvari
Ég vissi að Þórsmerkurferðinn ætti eftir að hafa eftirmála. Nú er ég kominn á samning hjá Mountain-Models. Restin af myndaseríunni mun birtast í ´Tímaritinu Fjallið fyrr eða síðar. Hver segir svo að útivist borgi sig ekki.
Hressandi að vera skemmtanastjóri Jæja enn ein vísindaferðin á föstudaginn bara 4 eftir fyrir áramót. Að þessu sinni för heitið í Ámuna, don´t ask why. einhvernvegin vilja vínframleiðendur eða innflytjendur bara endilega fá okkur í heimsókn.
Helgin jæja þá er maður búinn að fara í þórsmörk. Djöfullsins snilld var þessi ferð.
mættum í húsadal um klukkan 13 á lau og beint farið í göngu. Fyrst upp í Sönghellinn, svo var Valahnúkur tekinn í rassgatið og svo tölt niðurí Langadal og þaðn til baka í Snorraríki og auðvitað var drukkið öl alla leiðina. Svo var grillað um sjö leytið og djammað langt fram á nótt með hressum svíahóp sem var einnig á svæðinu. Man ekki hvenar við komum heim í gær en ég var alveg búinn á því allavega og fór að sofa snemma. Allt heppnaðist mjög vel enda búið að skipuleggja þetta í langan tíma. Er bara með smá samviskubit hvað ég gerði skálavörðinn fullan. Svo er það bara vísó næsta fös og svo námsferð í Ferðamennska og umhverfið eða F&U eins og við ferðamálafræðingarnir köllum það
Þessi mynd er frá göngunni reyndar sviðsett en frekar fyndinn
Þórsmerkur ferð á lau-sun
bara eftir að:
klára viðtal í eigindlegum
gera flugverkefni
redda öllu nema söngbókum
dvelja með fjölskyldunni
laga til
und lots of lots og things
ég held að ég sé að fara yfir um.... Afhverju í ósköpunum var þrælahald afnumið
nei ég segi svona ætli maður væri þá ekki einhver þræll.
Tilkynningarskyldan
Jæja ætli maður verði ekki að blogga eitthvað. Ég hef það fínt og flestir í kringum mig, Fór í mína fyrstu eigin skipulögðu vísindaferð síðasta fös það var mjög gaman. Kíktum í Egils og ég var kominn heim um hálf tvö, maður er orðin svo gamall og kominn með kærustu svo það verður að halda sér rólegum:) Jæja Bjórkvöld á Föstudaginn það verður fínt og svo bara hættuför þórsmörk 4okt það verður snilld sérstaklega ef það byrjar að gjósa. Járnstöng og koparvír er nauðsynlegur staðalbúnaður í þá ferð sérstaklega ef Katla tekur að gjósa(öruglega enginn eftir að fatta þennan brandara)
Annars er langt sem maður hitti alla vini sína, allir svo uppteknir að gera eitthvað annað. kannski maður hafi tíma á laugardaginn til að hitta þá alla. Ætlaði að blogga eitthvað sniðugt en man ekki hvað það var svo þetta verður að nægja. hverjir eru til í djamm á lau?
LÍTIÐ DJAMM UM HELGINA
Ótrúlegt en satt þá datt ég bara í það á fös var samt kominn heim snemma og allt. Ætlaði reyndar að fara í innflutningsparty í gær en það frestaðist vegna veikinda. Það var þá bara slakað á og horft á video frekar skrýtið svona á laugardagskvöldi. Kannski maður fái sér öl í kvöld engin skóli á morgun og svo gekk ég upp á Esjuna áðan og á Bjórinn þá virkilega skilið eftir að hafa verið rennblautur og hrakin. Skemmtileg gönguleið mæli með henni. Það hafa samt örugglega allir farið á esjuna er það ekki??
Skólinn gengur fínt er samt ekki alveg farinn að sjá þetta klikka allt saman. Er ekki fólk ekki til í eitthvað djamm, segi svona ég verð öruglega orðin alkólisti fyrir október ef þetta heldur svona áfram. Kannski ekki beint orðin heldur bara meira áberandi alkóhólisti en það er bara gott mál. Þannig er mál með vexti að maður vakir fram á nætur öll kvöld leggur sig á daginn eða hreinlega sofnar yfir bókunum og svo er ekkert hvílt sig um helgar. Verð að fara hreyfa mig eitthvað, hver nennir að koma í háskólaræktina einhvertíman kostar bara 100kall skiptið eða 1000 mánuður, Hef oft rölt þarna framhjá og tekið eftir opnum gluggum og glymrandi rokktónlist út um þá. Aldrei þorað að fara þarna inn hver veit nema þetta sé eins og eitthvað gufubað í vesturbæjarlauginni hver veit, ég meina ég veit það ekki.
Úff framundan Grand opening á Kapital nýr skemmtistaður í miðbæ rvík boðin þangað, Hver segir að það borgi sig ekki að vera Skemmtanastjóri strax kominn í þotuliðið, allir vinir manns og fullt af partyum. Eitt screw-up og maður er svo jarðaður fólk kann ekki að meta sjálfboðastarf hehe verð að passa mig. Svo eitthvað party á plönunum á stúdentadaginn 12.sept og svo kannski vísindaferð 19.sept og svo bara Þórsmörk 4okt djöfull hlakka ég til þess það var snilld í fyrra.
Amma Gella átti afmæli í dag bara 78ára til hamingju Amma og systir mín á afmæli á fös gleymi því örugglega en til hamingju samt
Jæja kveð að sinni farinn að horfa á dvd.
ps.Drekkið Tuborg og gefið mér kvittanirnar
Nýnemakvöldið var snilld er enþá timbraður náðum að selja allan bjórinn og held að við höfum ekki verið farinn út fyrr en svona 2, en þá var engin að fara. Gott djamm semsagt allir á skallanum samt aðalega jarð- og landafræðingar þeir verða massa fyndnir þegar þeir drekka. í Gær hitti ég svo Kidda Hólmar og Snorra í partý hjá Erlu held að það hafi ekki gerst í langan tíma að við hittumst svona allir í einu. úff er eiginlega enþá frekar þreyttur ætla fara leggja mig.
Foo fighters var geðveiki algjör snilld, hef sjaldan séð eins hressari gaura á tónleikum. Leit í skólan í dag eftir nokkra tíma svefn, kíkti nefnilega í ömurlegt eftirparty fyrir foo fighters þar sem þeir mættu ekki. skil það alveg þeir töluðu svo mikið um hvað ísland væri æðislegt að þeir hafa líklegast bara farið útí sveit að horfa upp í himininn. Jæja fyrsti skóladagurinn í morgun já Kortagerð það verður fróðlegt fullt af skemmtilegu fólki sem var með mann í fyrra í bekk. bjó svo til Auglýsingar fyrir nýnema kvöld Fjallsins og fór svo með bróðir og systur í túristaleik. eða bara svona einhvern rúnt. nauthólsvík perlan og svo framvegis.
Ég og Friðgeir kíktum svo Með Sigga skáta með meiru í klifurhúsið og skemmtum okkur konunglega þó ég efist um að ég geti lyft svo miklu sem einu bjórglasi næstu daga, algjör bömmer. jæja nú er ég á kleppi hjá ásu og zigga og stefnt er á að skunda í keiluhöllina og halda smá mót. þori að veðja að ég vinn þau öll muhaha
jæja jæja langt síðan síðast var bloggað en nóg með það. Foo Fighters eftir nokkra tíma og spenningurinn farinn að magnast.
Þegar maður tekur sig til og fer að gera eitthvað annað en vinna þá upphefst mikið. Á síðustu tveimur sólarhringum er ég búinn að redda amk 4 vísindaferðum, ferð í þórsmörk og kynna Fjallið fyrir öllum nýnemum í jarð- land- og ferðamálafræði. úff enda er maður búinn að vera á þúsund í allan morgun. Kannski bara einn bjór núna útá svölum í steikjandi hitanum úti. Lýsi hér með Bloggvetrinum 2003-2004 höfnum og mun hann verða skemmtileg lesning vonandi þar sem margt skemmtilegt er framunda í mínu lífi. Vona að það eigi líka við um ykkar líf.... To be continued
Skrýtið að vera loksins búinn í vinnunni klukkan 18. man ekki hvenar ég gerði það síðast. búinn að bralla helvíti mikið og nenni eiginlega ekki að blogga um það. Helvíti mikið framundan skemmtilegt en eins og ykkur sé ekki sama, nenni ekki ð blogga um það. lofa að vera duglegri þegar skólinn byrjar því þá er ekkert annað að gera.
jæja gaman hér í Reykjavík á góðum degi. ég mætti galvaskur til vinnu upp í kópavog í morgun og var ferðinn heitið til Eyrarbakka city. En allt kom fyrir ekkert, nefnilega ákveðið að taka sólarfrí ekkert betra en þessi vinna sem maður er í. jæja svo ég er bara búinn að njóta hitans þennan morgun labbandi um vesturbæjinn hlustandi á bob marley og nú stefni ég í sund. Er að reyna ákveða einhverja göngu eftir versló kannski Fimmvörðuháls Frá Skógum til Þórsmarkar hver er með ég veit að Rebekka væri örugglega til í það. jæja best að blasta Bob Marley og setjast út á svalir í góða veðrið
jæja ekkert heyrst lengi í mér. bara svona smá briefing, búinn að fara í nokkrar útilegur og norðurferð, aðalega djammað útá landi í allt sumar. Hættur með siggu er að komast yfir það eða þannig sakna hennar enþá en kannski bara fyrir bestu veit ekki. Inga Skemmtari flutt í hverfið loksins kominn svona heimavistar fílingur í lífið hér á stúdentagörðunum. mikið djamm framundan t.d. á morgun eða í dag föstudag kannski lau og fjölskylduhátíðinn stuð á stað sem er aðeins fyrir útvalda. og svo loksins frí um versló ef maður skellir sér ekki til útlanda um versló. Annars er sagðist Kiddi vera að fara deyja um versló. Annað hvort það eða fara til Eyja man ekki hvort, óskýrt samband. jæja þá er maður bara single aftur orðinn og hress hér í Rvík æðislegt. ekkert svo erfitt að byrja blogga þegar maður byrjar bara.
WANTED ALIVE
Himmaríki lýsir eftir tveimur mönnum sem nánar má sjá á meðfylgjandi mynd. Mennirnir heita Kristján Sturluson a.k.a Stinni Stuð og Jón Sturla Jónsson a.k.a. Stulli eða Bangsi. Mennirnir náðust á mynd á í sjallanum akureyri þann 31.maí síðastliðin og dreg ég þá ályktun að þeir dvelji þar en. Þess vegna stendur til Akureyrarferð yfir næstu helgi til að rannsaka málið nánar. Ef til vill er ekki netsamband á Akureyri? Nánari upplýsingar eru vel þegnar
Hvítasunnu helgi hvað Jæja bara láta vita af mér er ekki dauður. Er bara búinn að vera busy að vinna og ekki heima hjá mér. var að vinna á Eyrabakka á fös svo ég bara var í sveitinni hjá Siggu alla helgina helvíti gaman. lenti á fyrsta degi reiðnámskeiðs hjá þeim í dag sem by the way voru bara stelpur á sem lögðu mig í einelti. En Hilmar sýndi þeim og sannaði að hann væri engin aumingi og smellti sér á bak í fyrsta skipti á ævini og reið eins og hershöfðingi ekkert mál þegar maður er kominn í þröngar reiðbuxur með hjálm og hestahanska. Guði sé lof að engin sá þetta. svo var bara dundað sér við ýmislegt annað um helgina eins og einn kartöflugarður stunginn upp og sáð grænmeti og svo mikið smalað af allskyns hestum. Já ég las´líka bókina Íslenski Hesturinn -litir og erfðir á laugardaginn vegna þess að Sigga var í hestaferðalagi. En þó ekki áður en ég var búinn að ryksuga og þurrka af, Boah ég er svo duglegur. ég er að íhuga að gerast bóndi það er svo gaman allavega að keyra um þrengslin á kvöldin þar sem engin er á ferð og hlusta á Johnny Cash algjör snilld.
Svo bara vinna á morgun og viti menn þrif á Stokkseyri og Selfossi svo kannski maður gisti bara í sveitinni en og aftur þarf nefnilega endilega að fylgjast meira með þessum brúnblesótta og Brúnskjótta klárnum með halastjörnuna og álinn, eða bara kveðja Perlu sem ég reið í dag hún er nefnilega seld til Finnlands ok, ok, ég skal hlífa ykkur við ruglinu í mér
í sól og sumarveðri undanfarna daga hef ég verið duglegur að dekra við sjálfan mig. ég er eins og flestir kannski velta fyrir sér ekki byrjaður að vinna svo það er um að gera að njóta sumarfrísins eins og ég kalla það fara í sund fá sér bjór og slappa af. Eitt sem hefur þó farið virkilega í taugarnar á mér er leikskólinn fyrir neðan mig sem vekur mig klukkan 9 á morgnanna. En Börnin verða víst að leika sér líka og stundum er stórskemmtilegt að fylgjast með þeim héðan úr háloftunum. Eitt er víst að Leikskólar Stúdentagarðana eiga við slæman fjárhag að etja. Rétt í þessu kom ein fóstran og kallaði á alla krakkana í röð. þetta vakti að vitaskuld athygli mína þar sem ég sat í makindum mínum úti á svölum að njóta góða veðursins. Að mynda röð tók þónokkurn tíma og spennan var í hámarki. En það var nú ekki merkilegra en það að fóstran var að gefa krökkunum saltstangir. En come on ein á mann, og ekkert aftur í röðina annars var þeim hótað að vera send heim. Þetta er 101Reykjavík í dag. ég er að spá að skella mér´á reiðfák minn og fara í sund. Njótið góða veðursins á meðan þið getið ég er farinn að slappa af. Ég þarf nefnilega að passa alla helgina er að fá strák í pössun að norðan sem heitir Kiddi. Svo bara Partystand á morgun
Karaoke Stefnir í hörku partý á laugardaginn. Snorri bauð okkur í partý´heim til pabba síns þar sem horft verður á eurovision og svo karaoke keppni á eftir. þetta verður geðveikt fjör vona ég, og er ég strax byrjaður að æfa mig svo ég líti ekki illa hliðina á þeim feðgum eða þá Kidda sem vonandi tekur lagi, held ég gangi heim, held ég gangi heim. Málið er það að ég fór á www.downloads.com og náði í eitthvað karaoke forrit vanBasco´s karaoke player sem spilar svo midi skrár eða .kar skrár og textin kemur á skjáinn sem er snilld. Þannig að fartölvan mín hefur fengið nýtt hlutverk í sumar sem karaoke græja. búinn að ná í fullt af lögum svo þetta verður ekki leiðinleg helgi hjá mér og kidda. Verst er að ég á ekki mic, kannski Siggi sjái einn ódýran í Japan. Skemmtileg nýleg lög hér. Annars hörkuduglegur í da´g hjólaði í sund vesturbæjarlaugina nota bene skemmtileg laug bara gamalt fólk og virðist sem það sé engin sól þegar maður er þar. allavega var sól áður en ég fór og svo þegar ég kom uppúr. hjólaði svo heim og hlustaði á útvarpið og viti menn lagið með gaurnum sem er að hjóla kom í útvarpinu ,,when I get you alone eða hvað sem það heitir. skemmtilegt hjóla lag, betra en jólahjól. well farinn að sitja í sólinni og hver veit nema ég lumi á bjór í ísskápnum
BOAH þetta er nú búið að vera meira þriggja daga djammið, farinn í pásu fram að næstu helgi. partýið á föstudaginn var hreinasta snilld og bara nokkuð góð mæting hjá fólki. djammið á föstudaginn setti samt svip sinn á laugardaginn þar sem við áttum að hitta þessa margrómuðu Bandaríkjamenn. 4-5 forfölluðust svo við vorum þarna með 5 ameríkana á mann. helvíti hressir krakkar en samt skrítið djamm. allir voru búnir að gefast upp um klukkan 1 svo litlu var úr að moða. ég og Sigga tókum reyndar að okkur eina stelpu sem var algjör orkubolti hún var ekkert að gefast upp. Hittum fullt af fólki og ég hef bara sjaldan séð eins marga inná öllum stöðunum það var allt pakkað. Ég er búinn að vera rosa duglegur labbaði niðrá hverfisgötu til að ná í bílinn hennar siggu og fór á subway sem var vont. jæja kannski að maður skelli sér bara á Matrix í kvöld nenni samt ekki að hreyfa mig.
Dagurinn í dag
ég er farinn að skrifa svo leiðinleg blogg kannski maður taki sér sumarfrí. Ég er skrítinn, hef notið veðurblíðunar í dag með því að horfa reglulega útum gluggann og ekki stigið fæti út. Reyndar hef ég góða og gilda afsökun. Nefnilega þvottadagur dauðans. held að ég sé búinn að þvo öll fötin mín og nú vantar mig bara þvottagrind. En enginn vill fara með mig í rúmfatalagerinn og ekki fer ég út hálf nakinn svo ég ætla að njóta þess að vera kominn í þessa sjálfsheldu og ekkert kíkka út fyrr en í kvöld djamm djamm djamm einkennir þessa fyrstu daga sumarfrísins
próflok jæja nú er það bara hlýrabolurinn og kaldur bjór í hendi. veðrið er fínt og gæti varla verið betra. Rosa mikið að gera næstu daga partý á Vídalín klukkan níu á vídalín á morgun og svo smá djamm guiding around reykjavík 101 á laugardaginn með krökkunum frá usa sem ég hef bloggað áður um. einhver partý í kvöld jájá 3-4 í gangi. well ég er farinn að njóta lífsins.
Jæja kosningarnar búnar og ekki hægt að segja að maður sé alveg sáttur við úrslitin en engu að síður spennandi að sjá hvað skeður. ég fylgdist með kosningavökunni hjá stulla og skemmtum við okkur alveg konunglega. nú er bara eitt próf eftir sem er á fimmtudaginn. Tölfræði dauðans ekkert jafn óáhugavert sérstaklega á þessum sumardegi. er farinn að hlakka of mikið til prófloka. Ferðamálafræiðin verður með Vídalín á föstudaginn og svo förum við að djamma með ameríkönum á laugardaginn þetta verður skemmtileg helgi. svo er sumarið bara komið. well farinn að reikna eitthvað út...
Halló, komið öll á fætur Fimmtudagur í dag held ég og lítið breyst, enþá 2 próf eftir. Er að stúdera Hagræna Landfræði núna einstaklega skemmtilegt, prófið klukkan 9 á morgun sem þýðir að allur föstudagurinn er ónýtur. Svo tekur við lærimaraþon dauðans aðferðir2 svona tölfræði og skítur kann ekki rass en allt spurning um skipulagningu má vera með allar bækur og glósur með sér í prófið nefnileg. svo ég verð ekki mikið á djamminu þessa helgina hehe. Hlakka ekkert smá til 15.maí þá klára ég prófin og er ákveðin ef það verður gott veður að fara niðrá austurvöll og drekka bjór. Og svo nátturulega djamma með Amerísku jarðfræðingunum 17.maí það verður fyndið, veit örugglega miklu meira en þau öll til samans jæja áfram með lesturin. Þori að veðja að allir eru komnir með sólarsamba á heilan eða hvað sem þetta lag hét sem ég vitnaði svo skemmtilega í í byrjun
Nur Zwei próf eftir Eins og hefur kannski ekki farið framhjá Alþjóð stendur próftíð yfir á þessu frábæra landi sem við búum á. Eitthvað hefur borið á kvörtunum yfir bloggleysi hjá mér en það verður bara að fyrirgefast ég nenni ekki neinu þessa dagana próflestur í hávegum hafður. Skellti reyndar Cypress Hill í græjurnar áðan og undur og stórmerki ég fór að laga til og vaska upp. Dr.Greenthumb þar að verki hann hefur sko ekki letjandi áhrif á mig þessa dagana. Ég er hálfnaður í prófum og lítið er að frétta þessa dagana nema fór í grill hjá systur minni um daginn, miðað við það sem ég les hjá henni á blogginu virðist hún vera að missa tökin á lífinu. Hún minntist ekki einu sinni á að æðislega hressi bróðir sinn kæmi í heimsókn. Skellti mér sama kvöld á ónefnda kosningaskrifstofu þar sem ég fékk mér bjór með Erlu. Kæruleysið alveg að drepa mig. nei nei ég átti það skilið skítlétt próf sem var næst. náðist þó á mynd skemmtilegt nokk
skil ekki hvernig ég varð á vegi ljósmyndara vegamóta, ég leit í spegil áðan og ég er ekki frá því að ég sé komin með baugu undir augun. Kannski maður fari að stæla baugubræður í vínil næst en ekki justin timberlake
Jæja vona að þetta svali forvitninni hjá ykkur daglegu lesendum ég er farinn í sófan að hlusta á Bonnie "Prince" Billie (Will Oldham) plötuna Master and Everyone hún er algjör snilld fær mann til að langa í kærustu til að kúra með. Platan er bara eitthvað svo falleg. Boah!!! trúi ekki að ég sé að skrifa þetta en ótrúlegt en satt þá á ég mínar væmnu hliðar svo látið ykkur ekki bregða ef ég ræðst á ykkur og fer að gráta á öxlina á ykkur næst þegar ég hitti ykkur
jæja farinn að lesa Hagræna Landfræði æðislegt
Þvílíkt veður´
Það hefur ekki gengið vel í dag að lesa undir próf sökum hita og hávaða í leikskólakrökkunum. Gerði mér samt ferð áðan í hlöðuna þar sem ég komst að því að ég er ekki sá eini sem þar að líða þessa hitabylgju sem er að gera mig brjálaðan. Hefði átt að halda mig fyrir norðan þar er nefnilega skítkalt og smá snjókoma, ekki slæmt það. Í dag væri tilvalin dagur að setjast niður á austurvelli og fá sér einn eða tvo öllara. En ekki býðst það svo auðveldlega. Ætla samt að kíkka á kaffihús í kvöld og hitta strákana í bekknum og ræða málin. Gangi ykkur öllum vel í próflestri og endilega bloggið sem mest því það er ekkert betra að gera þessa dagana. Gleðilegt sumar by the way.
mér heyrist all vera fara til andskotans í borg óttans svo ég hef ákveðið að snúa aftur í dag. klukkan hvað verður ekki gefið upp en verið bara á varðbergi. Annars held ég að blogger sé alveg búinn að missa það núna
Jæja þá er komið að smá pistli allavega til að láta vita að maður er en á lífi. Páskarnir voru bara frekar rólegir datt bara 2 í það og þykir það nú bara frekar lélegt á minn mælikvarða. nenni ekki að tala lengur um páskana. fór að kjósa áðan nenni ekki að tala meira um það. Ég hef verið að læra svolítið undanfarið nenni ekki að tala meira um það. Mamma á afmæli í Dag. Ég er enþá fyrir norðan og það er kalt nenni ekki að tala meira um það. Ætla rifja upp gamla tíma og fara til kidda í kvöld og horfa á djúpu laugina eða ungfru island.is það verður geðveikt gaman þið vitið ekki afhverju þið eruð að missa af. Veit ekki hvenar ég sný aftur í borg óttans en það fer að styttast í annan endan á þessari akureyrinsins heimsókn
góðan daginn öllsömul, vonandi eru allir komnir á páskafrí því ég er eiginlega ekki kominn í páskafrí. eru að rembast viða að klára verkefni sem er alveg að verða búið eða þannig. jæja fer norður í dag og hyggst dvelja á hótel mömmu um tíma. hyggst stunda lærdóm og hjálpa kannski mínum yndislega bróðir að læra undir sæmræmdu prófin illræmdu. kannski maður skelli sér í bíltúr með honum, hann er nefnilega kominn með æfingaleyfi. sakar ekk að fá smá adrenalín kick fyrst að maður tekur ekki brettið með norður. jæja vonandi hitti ég sem flesta fyrir norðan veriði sæl að sinni
Rebekku brá í brún þegar hún sá mig í viðtali á mtv á meðan hún skokkaði á hlaupabrettinu í dag
I don´t blame her, við erum sláandi líkir.
Bara vonandi að Brittney lesi bloggið mitt einhvertíman. Eða ég veit ekki er gott eða slæmt að líkjast Justin Timberlake í fjarlægð. Mér finnst Himmi Timburlækur ekki alveg nafnið sem er að passa við mig
Ekkert meira korny að vera með svona könnun fyrir fólk sem veit ekki neitt
svo auðvitað tók ég þátt, skemmtilegar niðurstöður en ég vill taka fram að þetta er ekki endanleg ákvörðun. bara alltaf jafn gaman að hrista upp í liðinu
Kjósið bara eftir bestu samvisku
Niðurstaða:
Stuðningur þinn við stefnu flokkanna er eftirfarandi:
Hey Erla þetta er fyrir þig
Nick McHenry: Thu ert adal toffarinn! Toffari i hud og har (bokstaflega) Ert med adal gellunni i baenum, ert vinsaell rannsoknarbladamadur og hefur oft lent i aevintyrum i frettaleit thinni. Ther eru allir vegir faerir! I stuttu mali lifir thu mjog spennandi lifi!
ÞÓRSARI heeh bandaríkjamaðurinn sem afneitaði bandaríkjunum um daginn með því að segju upp ríkisborgararétti sínum er ÞÓRSARI. Afhverju jú hann heitir Þór Saari, ekki mundi ég vilja heita það ef maður væri ka maður. Jæja helgin búinn, Kiddi farinn og held að allt hafi gengið stórslysalaust fyrir sig bara. Veit ekki hvað það er en ég er alveg hættur að hitta vini mína, nema kidda auðvitað. Við kíktum niðrí í gær og held barasta að allir hafi verið að djamma en hitti engan af mínum nánustu kunningjum. ég er bara farinn að hanga með bekkjarfélögum og svoleiðis. kannski að það rætist eitthvað úr þessu um páskana
jæja þá er að gera verkefni. aðeins lítið eftir af kennslu svo allir vilja fá verkefnin sín fyrir páska. Fór á fund áðan með forsvarsmönnum icelandexpress og það var mjög fróðlegt aðeins skilafrestur á því verkefni á þriðjudaginn og fleiri í vinnslu helvíti gaman að þessu stressi. freistaðist samt áðan, ég er að fara á Scooter á morgun ekki til að hlusta á skemmtilega hressandi danstónlist heldur til að þrífa upp svitan af sveittum unglingum á e pillu trippi. já svo er kiddi að koma í bæinn á eftir eða hann er kominn svo hann á bara eftir að koma hingað til mín. Ætlum samt ekkert að fara á fyllerí eða allavega ekki ég. jæja best að fara fá sér næringu hef ekki fengið næringu í langan tíma...
hef ekki verið að blogga undanfarið en þetta er helst að frétta. fór í námsferð um suðurland endilangt á föstuaginn helvíti gaman. fórum svo öll á aðalfund fjallsins þar ég var kosinn skemmtanastjóri helvíti gaman kemur sér vel í framtíðinni. kíkkaði í afmæli hjá steinunni bekkjarsystur á lau það var fínt fórum svo á vegamót. bara frekar róleg helgi ekkert að frétta merkilegt. styttist í páskafrí bara smá verkefnavinna dauðans eftir.
hehe fékk hringingu áðan vitið ekki hvað ég er búinn að koma mér í, ég féllst á það að redda 13-14 félögum í ferðamálafræði til að taka á móti einhverjum 50manna amerískum hóp 16 eða 17 maí, fínt það prófin búinn. málið er það að þetta eru svona 19-20 ára krakkar frá einhverjum skóla í usa sem eru að læra um jarðfræði íslands og koma hingað í ferð um landið. málið er að hitta þau á hard rock cafe og fá frítt að borða tala við þau og vonandi draga einhverja á djammið. Hef verið settu í samband við prófessorinn sem er einhver kona, og ég ætla mér að skemmta þeim ærlega með minni nærveru. bara vesen að redda þessum félögum. Endilega ef einhver les þetta ´sem er með mér ferðamálafræði skráðu þig hjá mér. fæ meiri og ýtarlegri upplýsingar á föstudaginn á aðalfundi Fjallsins. ´Læt ykkur vita af frekari þróunn þetta er svo spennandi. ps ekki 1.apríl gabb
Af tillitsemi við fjölskylduna, vinina og fyrst og fremst heilsuna hef ég ákveðið að hætta drykkju um óákveðinn tíma. Vona að flestir geti sýnt mér skilning og stuðning við þessa auðveldu ákvörðun mína.
skemmtilegasta djamm ársins í gær Námsferðir eru snilld sérstaklega í góðum hóp. lögðum allt of snemma af stað að mínu mati á fimmtudags morgun og haldið var á Akranes þar sem við skoðuðum Lmí og safnahúsin allt í lagi svosem. vorum samt nýbúinn að fara þangað í öðru fagi. svo fórum við á hvanneyri og barnafossa og hraunfossa æji vadda fokk tel bara upp staðina húsafell reykholt, borgarnes og fleira. komum á Reykholt um klukkan 18 í gær til og þá hófst drykkjan formlega. reynt var að fara í sund en sveitakonan var ekki á því að hleypa neinum sem hafði innbyrt áfengi á lífsleiðinni útí laug svo það var frekar leiðinlegt en Gummi lét hana heyra það. svo skrópuðu ég og Gummi í matnum vorum bara inn á herbergi að sötra. svo eftir að allir voru búnir að éta var haldið í party í einu húsinu sem var með setustofu og þvílíkt party algjör snilld hef aldrei skemmt mér betur. Reyndar tóku nokkur óhöpp sinn toll eins og 3 brotin borð og fleira skemmtilegt. Sumir voru fullari en aðrir en ég hélt mínu striki og var til fyrirmyndar. verð að segja að ferðamálafræðibrautin hafi rústað land og jarðfræðinni í öllum keppnum kvöldsins. Jæja í morgun var svo vaknað klukkan 9 og drifið sig á stað kom heim áðan rétt um klukkan 18. Kiddi Er að koma í kvöld svo Danni og Gummi kíkka í kvöld og hver veit nema það verði eitthvað kíkt á lífið amk til að sýna Kidda lífið. svo er rósa líka í bænum held ég.
jæja þá er skólavikan búin hjá mér eða svona nokkurn vegin. málið er það að ég er að fara í námsferð með mannvist2a í borgarfjörð og það er kominn þrusustemming í hópinn sem ég er að fara með allt klárt allavega fyrir fimmtudagskvöldið. Gistum á hótel reykholti nefnilega og það verður eitthvað geim. Maður á að skrifa dagbók um ferðina en það verður ekki mikið vandamál hef reynsluna frá interrail ferðini sem stóð í mánuð svo 2 dagar ættu ekki að vera vandamál. Spurning hvort maður gefi út interrail-dagbókina út um næstu jól með smávægilegum breytingum. Ég er kominn með titilinn, Sofið í Lest, ekkert vaknað í Brussel krapp. Veit allavega að þeir sem ferðuðust með mér mundu kaupa eintak svo ég er kominn með amk 5 kaupendur ætli fleiri mundu hafa áhuga á að kaupa bókina. Á eftir að reikna dæmið til enda. Spurning hvort það verði gert eitthvað gert um helgina margir búnir búnir að tala um djamm á fös og lau en mér er farið að finnast komið nóg í bili.
Fokkings tölvur eru ekki vinir mínir í dag. pc tölvan mín hrundi á föstudaginn og síðan hefur allt gengið á afturfótunum en núna er ég með fartölvu skátans og virkar hún bara fínt eins og komið er. Sé samt fram á bjartari framtíð í mínum tölvumálum og ætla ég hér með að láta þetta umræðu efni eiga sig.
Sá að Stulli var að skrifa um múslimana sem brenndu íslenska fánan í köben um daginn. Hingað til hefu ég allaf hugsað hlýtt til múslimaríkja fyrir að vera einu löndin sem þora virkilega að standa uppí hárinu á þessum amerísku djöflum sem tröllríða nú öllum miðausturlöndum. En þegar ég sá þá brenni minn ástkæra fána og skemmmta sér bara konunglega við það sárnaði mér heldur mikið. ég meina ég hata ekki alla múslima fyrir 11.september svo þeir geta ekki hatað alla íslendinga á móti. Kanski er þetta gott fyrir fólkið á Hofsósi sem hefur sitt lifibrauð á að sauma íslenska fánan. Þetta á eftir að vera langt stríð og afhverju getum við ekki grætt á því eins og seinni heimstyrjöldinni.
jæja en einn föstudagurinn runnin upp og líst mér bara ágætlega á hann. Ekkert samt ákveðið í sambandi við helgina kannski maður taki því bara rólega. komst að því fyrir tilviljun laust fyrir miðnætti í gær að það væri frí í mannvist í morgun svo ég horfði á innrás í beinni langt fram eftir nótt í sjónvarpinu. líklegast sjúkasta raunveruleikasjónvarpið í dag. Annars er á planinu búðarferð okkar systkynana í dag það er alltaf jafn gaman, kannski maður fari niðrí bæ áður en hún sækir mig að mótmæla einhverju eða setja bara í eina þvottavél. Ég er farinn að gruna að fjöldamótmæli og undirskriftalistar hafa engin áhrif, allavega ekki íslandi fólk þarf að grípa til rótækari aðgerða
Undur og stórmerki hafa gerst í heiminum í dag Erla hefur sagt af sér sem djammdrottning reykjavíkur, sagan í stuttu máli er sú að ég gaf henni 48klst frest til að detta í það rækilega en hún gerði það ekki svo nú í þessum töluðu 0rðum situr hún líklega á fundi með AA-samtökunum og veltir fyrir sér hvernig hún geti náð heimsyfirráðum aftur. Ég sé þetta alveg fyrir mér: Hæ ég heiti Erla og er eða var djammdrottning og gettóhóra. greyið Erla ég óska henni velfarnaðar í sínu nýja ömurlega lífi sem það verður innan tíðar eða ca 48 klst.
Vér Mótmælum öll Ég er að reyna koma á mótmælum sem munu standa yfir alla virka daga og nætur fyrir framan herbergisgluggan hennar Erlu þangað til hún dettur í það, Hún segist nefnilega vera hætt að djamma um helgar bara virka daga sem sökkar
long time no blogging. ég er búinn að fara í bíó, fimmtudagsfyllerí, vísindaferð, sumarbústaðardjamm lau og sun, próf í morgun, atvinnuviðtal og margt fleira ekki haft neinn tíma til að bloggakannski. Bara fínt fyrir umheiminn öllum sama um mig. Ætla samt að halda áfram því ég veit að fólk hefur gaman að þessu. en nóg í dag ég er farinn að chilla. ps hilma frænka er byrjuð að blogga eitthvað aftur botna samt ekkert í skrifum hennar
þó það hafi langt síðan ég dvaldi langan tíma í Austurríki, hafa tónlistarmenn þar lagt mikið uppúr því að semja lög um mig og mála málverk til að halda í minninguna um mig. Eitt af mínum uppháhalds lögum er með Frendl Fesl og heitir því stórskemmtilega nafni Wannst in Himmi, sogt a, wuist. Endilega hlustið á það hér
Jæja fyrsti skóladagurinn í vikunni búinn og bara helvíti gaman að hitta alla aftur eftir að hafa djammað með þeim alla helgina. Var boðið í afmæli fyrir norðan um helgina og far og allt en ég er að pæla í að sleppa því og fara frekar í sumarbústað í Grímsnesi að læra fyrir aðferðir 2, Nefnilega próf á næsta þriðjudag og mér finnst ég ekki kunna neitt í þessu fagi. en ekki verður þetta djammlaus helgi, Á föstudaginn hittir skrattin ömmu sína þar sem nemandafélagið fjallið, félag jarð- land- og ferðamálafræðinema mun heimsækja Landsvirkjun, mikil tilhlökkun er í hópnum og held ég að þetta verði frekar gaman bjór, hvítvín og matur, Frekar spennandi að sjá hvort það sjóði uppúr. Annars er nóg að gera í skólanum Mannvistarnámsferð í næstu viku, gist og allt má koma með nesti í fljótandi formi
Umm yndislegur dagur. Kíkti á Mógilsá í morgun með náttúrufræði hópnum mínum og fræddist um skóga og skógrækt. Kom svo heim uppúr hádegi og las blogg félagana og sá auglýst eftir ríðufélaga þ.e.a.s. riding partner eins við snjóbretta fólk tölum um félagana. Sú heppna var Rebekka og bauðst ég til að fara með henni í Bláfjöll. Rebekka hefur alltaf verið grand á því og nú var enginn undantekning. Gellan reddar nissan terrano 2 hjá bílaleigunni Alp sem ég er mjög þakklátur fyrir. Hún rétti mér lyklana og leyfði mér að keyra. Rebekka var frekar snögg að læra undirstöðuatriðin eða kannski ég sé bara svo góður kennari. by the way hef aldrei kennt neinum á bretti, ég lærði þetta sjálfur svo Rebekka þú ert one of a kind. jæja við fórum 4 eða 5 ferðir saman að mig minnir svo dróg hún sig í hlé enda búinn að rústa öllum reykvíkingunum í brekkunum. þá fór ég auka 4 ferðir og tókst eitt glæsilegt stökk á einum palli, ofmetnaðist og slammaði andlitið í næstu ferð. svo ég fór bara í skálan að hitta Rebekku hetju. svo keyrðum við í bæin þurfti að smella öryggisbeltið fyrir hana vorum eins og gömul hjón. Takk fyrir æðislegan dag í fjallinu Rebekka mér leið eins og algjörum túrista í fríi á bílaleigubíl. þegar heim var komið kíkti ég með skátanum á Banff mountain film festival í smárabíó sem var svosum ágætt. kom svo heim fyrir stundu og komst að því að Rebekka er olbogsbrotin en hún hlær að því samt sem er gott. Svo endilega ef ykkur vantar vanan kennara bara að koma sér í samband við mig og ég hætti ekki fyrr en þið kunnið á bretti eða öll bein í líkama ykkar eru mulin.
Fékk boð um far í afmæli norður um helgina er að íhuga málið.
Svona var dagurinn í dag helvíti góður að mánudegi að vera og ég er orðinn jafnþreyttur og eftir árshátíðinna
Jæja ekkert bloggað í langan tíma vona að þið hafið saknað mín. Annars er það helsta sem ég er búinn að afreka er Árshátíð Fjallsins félags jarð- landa og ferðamálafræðinem og mikil drykkja. langt var af stað í ferðina á laugardag. mæting var 9:30 í jarðfræðihúsið þar sem tekið var á moti okkur með léttan morgunmat og fyrsti bjórinn opnaður við stutta athöfn. Svo var lagt af stað og kíkt í ýmsa leiki á leiðinni og spreytt sig á þrautum. Fyrsta almennilega stoppið var sólheimar í Grímsnesi. sem var frekar leiðinlegt en þá var bara að drekka meira. um fjögur komu við svo á aðfangastað Geysi í Haukadal þvílíkt suprise vissum það 2 vikum áður þetta var sko óvissu ferð. Svo það var bara drifið sig í pottana og nokkrar vel æfðar dýfur stundaðar í ískalda sundlaug og skellt sér í sturtu party með stelpunum. jæja svo fór að í að styttast í að borðhald hæfist svo það var sjænað sig til á 5-mín og skellt sér í borðhaldið þar sem mikil drykkja hélt áfram. í happdrættinu vann ég súkkulaðihúðaðar kaffibaunir ??? glös og kaffi brúsa sem týndist og var það eina sem ekki fannst aftur. þætti vænt um að fá hann aftur ef þið vitið hvar hann er. Skemmtiatriðið tókst glymrandi ´vel og við vorum öll yfir okkur hrifin. En einhvernvegin tókst okkur ekki að vinna í þá keppni. eftir ballið var svo dansað og það skilaði sér í þreytu og stirðleika sem er búinn að hrjá mig í dag. ballið var eitthvað til 3 eða 4 og svo var bara partíast meira. tókst að týna báðum myndavélunum mínum en fann þær aftur sem betur fer. Hér er smá mynd af gengina á fyrsta ári allir að sýna sitt rétta andlit
Drykkjan Ég trúi varla en hversu mikið magn áfengis (bjórs) mér tókst að innbyrða í gær án þess hreinlega að verða ofurölvi og leiðinlegur. Á leiðinn tók ég 7 bjóra með mér og drakk þá alla svo keypti ég bjórkort hjá stjórninni. 10 stk takk og svo þegar ég fór af ballinu keypti ég 10-13 bjóra man ekki allavega voru bara 4 eftir í morgun. stanslaus drykkja í ca sólarhring ekki slæmt en ég er kannski engin amatör
Heim í hádegismat það tók engin á móti mér með mat svo ég sauð 4dl af vatni setti núðlúr út í pottin og tilheyrandi kryddblöndu sem er hernaðarleynarmál mitt. mallaði þetta í smá stund og heldi svo mörgum sósum útá sem flestar voru rauðar að sjálfsögðu. Smakkaðist bara furðu vel og íhuga ég nú að halda uppteknum hætti.
Jackass til Íslands Orðrómur er á kreiki að jackass fjöllistahópurinn sé á leið til landsins 11.apríl n.k. þér eru nú búnir að gera allt vitlaust í evrópu sbr. þetta hér og hér. Spennandi að sjá hvað þeim tekst að gera á íslandi.
frekar fyndið þetta röfl milli davíðs Oddsonar og írafárs eða baugs man ekki hvort það var. Davíð í öllum fréttum með kökkin í hálsinum segjandi að hann vilji ekki fá 300milljónir til að fjármagna kombakk skítamórlas, það gæti haft slæm áhrif á írafár sem heild þar sem birgitta er með trommaranum í skímó og var eflaust ein af ástæðum þess að þeir hættu. Fyrir utan að það var einar bárða sem kastaði flösku í birgittu á evróvision en fréttablaðið sagði að Davíð hafði gert það. annars væri ég allveg til að fá 300milljónir til að láta baug afskiptalaust veit samt ekki hvar ég mundi versla í staðinn kannski í nettó bara.
Jæja þessi fréttafluttningur og röfl í dabba er allavega búið að vera frekar pirrandi og væri ég alveg sáttur það ef hann bara tæki þessum peningum og kæmi sér úr landi. Hann mundi samt ekki þurfa það því hann kemst upp með allt
Skrýtið hvernig sunnudagar eru ögn viðráðanlegri ef maður er edrú á laugardögum. var samt á ferðinn í nótt kíkti í afmæli og var driver fyrir ásu sys og skátan. það var bara ágætis tilbreyting. fór svo í dag í leiðangur til að skila bílnum og keypti fullt af bollum og fór í bollukaffi til ásu sys á kleppi. það var líka fínt, eyddi svo mestum parti af deginum að samgleðjast þynnkunni sem þau upplifðu og það gekk bara ágætlega. nenni ekki að blogga meira í dag, hringd´í mig
djammið í kvöld fór nú ekki betur en það að bjórinn er búinn kláraðist í gær. dósirnar standa tómar á borðinu og búið er að loka í ríkinu. vaknaði samt hálf-afklæddur áðan og hugsaði með mér humm hlýt að hafa sofnað við óklárað verk en þetta verður eflaust ráðgáta að eilífu. nú stripplast ég bara um íbúðina hálf klæddur með pizzu í annari og dundrandi músík í eyrunum. yndislegt stundum að búa einn. jæja veit ekki hvort maður kíkki út í kvöld er boðinn í eitthvað afmæli og stelpurnar í bekknum voru eitthvað fúlar þegar ég sagðist ekki komast, en ég kemst núna plönin hafa breyst
Lag kvöldsins: Brakes on - Air
Hljóðfæri kvölsins: digerídu
Maður kvöldsins: Auðvitað ég kannski Danni
Einkun: 6,5-7
Lítið að frétta í dag nema að spenningurinn fyrir árshátiðinni er að verða óbærilegur, allir með miklar yfirlýsingar og væntingar. Án efa stærsta fréttin í íslensku tónlistalífi í dag er að Skímó er að koma aftur saman sem er æðislegt og þeir spila í sjallanum Ak 16.apríl eða eitthvað eða um páskana. Hver á ekki skemmtilegar minningar frá því tímabili þegar þeir voru upp á sitt besta, Hér kemur ein, Setjið ykkur inn í aðstæður þið eruð í sjallanum 18,19 eða 20ára man ekki, það er stappað dansgólf og skímó að spila allir að djamma. Svo tekur einhver snót uppá því að hella yfir mig bjór sem er í raunini allt í lagi þar sem bjór er góður fyrir allan líkaman en viti menn Stella sem var að dansa fyrir framan mig og snéri baki í goðin gerði sér lítið fyrir og reif flöskuna af stelpunni og fleygði henni svo glæsilega aftur fyrir sig. Nú verðiði að ímynda ykkur atburðarásina í Slow motion. hvar vorum við já flaskan var komin í loftið og ég sá að illa stefndi, hún sveif rakleiðis að áttina á gítarleikaranum sem held ég heiti Gunni, ég öskraði svona í slow motion Gættu þín hikk þín Gunni,,Neeiiii.....OK flaskan lenti beint á honum og hann virtist særður á svip og gerði sér lítið fyrir tók hljóðfæri sitt af sér og gekk út. Hinir í skítamóral vissu ekkert hvað hafði gerst svo þeir kláruðu bara lagið og fóru svo af sviði til að hugga félaga sinn sem var helsærður. Svo kom bara disko stemming í smá stund, grease syrpan og svoleiðis sem leiddi af sér tilkynningu að skímó væru hættir að spila því einhver hálviti kasta flösku í þá. Ég meina það sko gera sig út fyrir að vera rokkara og svo er bara hætt að spila ef ein flaska lendir á þeim. Hann Sid Vicious sálugi fékk einu sinni flösku í hausinn og það blæddi og allt en ekki hætti hann því honum fannst það flott eða þá var hann útúr dópaður.
jæja allavega þá veit ég að Addi Fannar litli gaurinn í skímó með dreddana er að læra ferðamálafræði og hann er á leiðinni á árshátíðinna sem ég er að fara á. Svo hver veit nema maður ræði þessa lífsreynslu við hann við tækifæri og segji honum að þetta hafði bara verið slys.
Er að fara í mat til Þórhildar og Rebekku, Þórhildur ætlar að elda sína margfrægu pizzu sem öllum langar til að smakka á. er að bíða eftir að Stulli taki strætó upp í fálkagötu ætla sko að hitta hann þar og ætlum svo að labba í ghettoið vel vopnaðir að sjálfsögðu. ætlum svo að kíkka aðeins á bjórkvöld hjá mínu nemandafélagi. og hver veit nema þetta verði bara skemmtilegt kvöld enda fallegt veður í dag og einu fjöllin sem eru opinn eru hér norðan heiða.
Djöfulsins snilld ég var búinn að gleyma því að ég ætti óupptekna minidiska í spilarann, einnig svona usb port til að tengja í litla greyið sem tekur upp allt að 340 mín á einn lítinn disk. svo nú er maður bara tilbúinn í brekkurnar með rokkið í eyrunum næst þegar ég fer einn að renna mér. annars búinn að sitja fyrir framan tölvuna í langan tíma í kvöld að reyna koma reglu á þessa óreiðu sem allt mp3 safnið mitt er í. Farinn að sofa
þvílíkur kaffi og orkudagur það er greinilegt að framboðsflokkar vilja hafa mann vakandi þegar rætt er við mann. annars held ég að eingin hafi veitt mitt atkvæði í dag allavega. Átti að halda fyrirlestur áðan um sóknarfæri íslenskrar ferðaþjónustu en hann klikkaði af tæknilegum forsendum það er að segja kennarar fjárinn var ekki með netkort. annars fínn gaur. skráði mig á árshátíðina í dag hætti við að hætta við verst að ég er bara single og verð örugglega settur í herbergi með einhverjum illa lyktandi jarð eða landafræðingi. Allir eitthvað tregir til að fara. þetta er semsagt ferð eitthvað austur hótelgisting heitur pottur þriggja rétta máltíð og bjór á 100kall endar örugglega illa. annars er dagurinn ekki búinn eftir að gera eitt verkefni fyrir morgundaginn það verður fundur í kvöld. en núna er ég drullu svangur talandi um mat held að mér sé boðið í mat á morgun til flyðrana er að pæla að þiggja það með þökkum ef raunin er sú. þó ég sleppi dans æfingu á astro fyriir árshátíðina en who gives the fuck ég kann alveg að dansa, annars bjórkvöld eftir dansæfingu og það er aftur á móti frekar freistandi. örugglega hægt að kíkka á það í eftirmat
Fréttir, hef fylgst svolítið með fréttum í dag. Það á að opna þjóðminjasafnið sumardaginn fyrsta árið 2004 en það sem mér fannst vanta var klukkan hvað, þessari spurningu verður eflaust ósvarað en ég íhuga að skrifa Menntamálaráðherra og krefjast svara. Annað með samrændpróf í framhaldskólum. Mér finnst það bara fínt það þarf að samræma prófin aðeins betur þannig er hægt að sjá ýmislegt eins og hvaða skólar er bestir og hvar má endurskoða kennslu til muna. það er bara eins og fólk fari alltaf í panic þegar minnst er á samræmd próf. jæja þetta er ekki endanleg skoðun mín á eftir að velta þessu aðeins fyrir mér. get örugglega ekki sofnað í nótt verð bara að vita klukkan hvað safnið opnar
Mamma hringdi í mig í gær og óskaði mér til hamingju með daginn, hún alltaf jafn fyndin kannski ég hafi erft mína einstöku kaldhæðni frá henni. Hún sagði mér að bróðir minn væri að gera góða hluti á akureyri. Hann skellti sér á Árshátið Lundarskóla á föstudaginn og kom heim með tvær rósir. Hann var valinn Konungur skólanns og sætasti nemandinn eða eitthvað álíka. Fyrir þá sem hafa hitt bróðir minn kemur þetta kannski ekkert á óvart en mér hefur verið sagt að hann sé mjög líkur mér. Jæja hann var samt ekkert svo hrifin af þessu öllu sjálfur enda skil áeg það óstjórnlegt kvennhylli hefur aldrei verið af hinu góða. Kannski maður fari norður bráðum og veiti honum áfallahjálp þar sem hann er nýlega búinn að uppgvöta að hann hafi mojo. vill ekki að hann verði fórnarlamb the dark side eða eitthvað álíka. jæja engin skóli hjá mér í dag frekar en annanhvern mánudag frekar leiðinlegt nenni ekki að hanga inni og læra sólinn úti alveg að bögga mig. kannski maður fari og fái sér göngutúr eða smá skokk hehe sé mig í anda skokkandi. þó ég eigi það til þegar ég nenni ekki að labba
jæja nóg að gerast hef bara ekki haft tíma til að blogga. á fös var ég að vinna frá 13-24 en stóð við loforð mitt og kíkkaði út á lífið með stulla og það var bara fínt. svo í gær fór ég í krummahóla 10 í party til Danna og það var sko laim party en einhvernvegin tókst að gera það skemmtilegt. kíkti á Sólon á stelpupartyið hennar þórhildar og tók að mér tvo ameríkana og fór að djamm guide´a helvíti gaman held að það sé markaður fyrir þetta.jæja hélt svo eitthvað annað að djamma og man ekki meir eða frekar að ég nenni ekki að blogga um það. en þetta var þrusuhelgi og ég vill þakka guði fyrir að hafa ekki farið norður.
Skemmtilegur dagur í dag fór í skólann klukkan korter í þrjú. eins og gæjarnir voru í gamla daga svona korter í þrjú gæjar. það var mjög gaman í skólanum í dag allir hressir í góða veðrinu og svo helgin að nálgast og það er búið að bjóða mér í partý á laugardaginn hjá Þórhildi flyðru, og já mátti taka alla með sem ég þekkti. svo 1.mars er búið að bjóða mér í tvö partý, Afmæli og vinnupartý. held að það sé enginn spurning hvort ég velji en samt erfitt að ákveða sig. fara í partý eða PARTÝ það er spurningin. Skrapp annars í vinnuna áðan þar ég hlustaði á 10mín ræðu Gaursins frá litháen um eurovision það var fróðlegt, skil ekki baun sem hann segir. jæja ætla vinna líka á morgun og hitta svo stulla um kvöldið og fá mér öl, annars ekkert meira að gerast hér á heimilinu, ég bý en einn og allt í rusli. kannski maður fái sér einn kaldan fyrir háttin skál og veriði sæl
Ekkert mikið búið að gerast nema ég fór á fund um kárahnjúka virkjun í dag þar sem Andri Snær Magnasson flutti lítið erindi. Hann er alltaf jafn sniðugur. Annars er maður hálf lamaður með þetta commentakerfi svona bilað. Eins og öllum sé sama. Já og ef ég sendi ykkur eitthvað rugl á msn ekki opna það. Tölvan mín er kominn með sjálfstæðan vilja og sendir alltaf eitthvað rugl til allra sem eru online. Er að vinna að laga það. Fer ekki Norður um helgina svo maður er alveg til í eitthvað skemmtilegt.
blah blah blah nenni ekki að blogga en hér kemur Helgin fór suður um 10 á föstudagsmorgun og var kominn tímalega í fjallið og brettakvöld félagsmiðstöðanna tímalega en það varð að engu fjallið lokað á slaginu sem maður mætti uppeftir, helvítis pakk. Svo það var bara farið heim í fýlu og snæddur kjúklingur hjá mömmu og spilað smá vice city sem er snilld. um kvöldið skellti ég mér til kidda og við duttum í það á degi elskandana. ekki amalegur félagskapur það. sem minnir mig á það ég skulda kidda bjór. hann fær hann seinna. jæja skelltum okkur í sjallan´Óli Palli að spila sem olli öllum miklum vonbrigðum, kannski voru væntingarnar of mikklar en við hittum Geira Huginn og Villa Stebba svo það var rokkað mikið þegar RATM var spilað, Glös brotin fólk skallað og hrint. helvíti gaman. En kvöldið endaði að ég og Kiddi fórum heim til kidda að drekka meiri bjór sem endaði þannig að ég sofnaði í Sófanum hans og svaf vel. Ekkert kynferðislegt bara munnmök. man ekki eftir laugardagsmorgninum en ég fór heim og lagði mig og svo var svona mini þorrablót heima þar sem að sjálfsögðu var talað um mat sem fólk borðaði í gamladaga og þar kom mest á óvart soðinn Kýr júgur sem þóttu víst algjör unaður hér í gamla daga og mamma stundaði það að bíta framan af spenunum þegar þeir voru settir í súr. Eftir að hafa íhugað að afneita fjölskyldu minni um stund ákvað ég að taka hana í sátt enda lítið annað hægt og ákvað að eyða laugardeginum öllum heima hjá fjölskyldunni. þannig að ég sleppti djammi með kidda, Hólmari Stól eins ég kalla hann núna og kannski Rósu. Ég var semsagt félagsskítur á laugardaginn ekki ósvipað og Erla hefur tekið upp á að gera undanfarið. Well á sunnudaginn leit nú ekkert útfyrir að maður kæmist heim en ég lagði af stað með Jón og Gunnu (Systir pabba) um hálf átta í gær og var veðrið fínt nema fyrir utan smá eldingar nálægt Bifröst það var dularfullt. jæja svo þegar komið var í Byen fór ég að athuga með lykla að klefanum mínum hér á görðunum en fann þá ekki. þeir fundust á skrifborðinu mínu heima svo ég þurfti að gista í grafarvogi í nótt hjá Gunnu frænku og var ég mjög þakklátur fyrir það. jæja svo ég kom heim í hádeginu í dag eftir að hafa sótt lyklana mína á flugvöllin. Þannig var þetta ævintýri, ekkert farið á bretti og skítaveður næstum allan tímn þrátt fyrir smá sól í gær. það þarf mikið að gerast svo ég skreppi aftur norður í bráð.
Jæja nú er komið að því ég ætla að yfirgefa borg óttans og heimsækja borg gleðinar um helgina. legga f stað klukkan 10 á morgun og strax er búið að plana allt nema heimförina. á morgun: beint uppí fjall í snjóbrettakvöld, held að það sé samt harðfenni núna svo ekki láta ykkur bregða þó að þið sjáið mig í hálskraga eða hjólastól eftir helgi en ég yrði ánægður ef einhver gæti ýtt stólnum fyrir mig á djamminu. á laugardaginn auðvitað fjallið og svo hið árlega þorrablót fjölskyldunar sem eru alveg æðisleg, kannski eitthvað djamm með kidda eftir það. Sunnudagur þynnka og playstation eða heim eða heim á mánudagin. Jæja bið ykkur vel að lifa eða drepast um helgina auf wiedersehen, borgin verður ekki söm án mín.
Engin annar en Chris Burke var í litlu gestahlutverki í ER var ekki að horfa en sneri mér aldeilis að kassanum þegar ég heyrði í honum. hann virðist en vera fastur í Corky karakternum en það er svosum allt í lagi.
Hér er svo ein af hele familien
lalalala ég er svo hugmyndasnauður núna hef ekkert að blogga um. Nema eitthvað sem ykkur kemur ekki við. Annars er ég búinn að hugsa nóg í dag aðferðatími 2 og ég alveg að rúlla upp dæmunum. Svipaðar aðferðir og voru kenndar í 4.bekk í MA svo þetta er en í fersku minni. Kemur í ljós í kvöld hvort ég fari Norður um helgina, það er svo mikið sem ég þarf að gera þar ætla sko að fara heimsækja playstation 2 tölvuna mína, Kidda, Fjallið, Sveitina og margt fleira sem eflaust felur í sér óhóflega vímuefnaneyslu. Sjáum samt til það væri kannski við hæfi að kalla þetta ferð til AAkureyrar. Nú er það þvottatími, á pantaðann tíma í þvottaherberginu með þvottavélinni sem ég kann ekkert á.
Fór þreyttur í skólan í morgun en það var þrusugaman stefni á að halda uppteknum hætti héðan af svo ef þið hafið ekkert að gera á nóttunni endilega hafið samband... jæja annars dagurinn í föstum skorðum fór á kaffihús í hinni miklu eyðu, fyrst með Gumma og svo Stulla rétt erftir eitt. Ræddum aðeins plön helgarinnar en hlógum mikið af afrekstri helgarinnar komst að því að við erum gott teymi og vill ég deila róna titli helgarinnar með honum ef Erlu og hinum rónunum er sama. Hann á það skilið. bless í bili er farinn að vinna að mínum málum.
jæja kominn heim fór að vinna klukkan 18 en það tók eitthvað lengri tíma en til var ætlast svo ég kom heim 2:30 en skóli á morgun klukkan 8 og svo kaffihúsa rölt eftir það, er það ekki Stulli? jæja ég er farinn í sturtu svitnaði eins og mófó í vinnunni og er að drepast úr strengjum síðan í gær.
Ég hef snúið blaðinu við og hyggst nú stunda heilbrigðara líferni það sem eftir er að deginum. vaknaði snemma í morgun nota bene fór ekkert út í gær. Fór nefnilega með Skátanum og hans félaga í bláfjöll og það var mjög fínt færi. geðveikt gaman en getur verið leiðinlegt að ríða niður brekkurnar aleinn allan daginn. nú er það bara Mjólkurglas og nóakropp fyrir lúin bein. ég er byrjaður að finna hvernig hver vöðvi í líkamanum er byrjaður að styrna, kemur alltaf fyrir svona eftir fyrstu ferð vetrar datt samt ekkert. Ætla skella mér í heita sturtu og elda eitthvað geðveikt gott fyrir mig ég á það skilið. Engin skóli á morgun kannski maður reyni að vinna eitthvað ef maður getur labbað á morgun.
jæja jæja jæja enn ein vísindaferðin að baki and I´m still standing ókrýndur konungur djammsins. Jæja byrjuðum í egils þar sem var drukkið drukkið og drukkið. svo komum við niðrí svona um sjöleytið og drifum okkur inn á Astro sem er ömurlegur staður en hann selur sig ódýrt. Hitti fullt af áhugaverði fólki þar á meðal Árna Steinar Vara forseta alþingis, sem ég ræddi heil lengi við um túrisma, náttúru, mótmæli, og vinstri græna Hann sagðist ætla bjóða mér í pizzu einhvertíman svo ég bíð spenntur eftir því. Hvort ég fari er samt spurning. Svo eftir Astro var flakkað á milli staða og loks endað á 22 þar sem minnið var farið að glatast. Hitti allavega Stulla og fleira fólk sem er æðislegt. þarf núna að fara púsla saman kvöldinu og ákveða hvort maður leggi líka af stað útá lífið í kvöld. en þær líkur eru litlar. Skátinn hrindi í mig í morgun og bað mig um að kíkka í bláfjöll en ég varð að segja nei enda lítið búinn að sofa og á barmi svefns og vöku, Held alla vega að hann hafi hringt. Talandi um skátan þá held ég að Ása sys sé bara ekkert hætt að blogga
Horfði á heimildamyndina með Honum Mikjáli Jónssyni eða hvað sem æskan kallaði hann hér í gamla daga, Mjög áhugaverð mynd. Annars lítið gert í dag nema verið í skólanum. Allir endar að smella saman ég er að verða týpan sem leiðréttir Kennaran, kem með framíköll og svara öllum spurningunum. semsagt allt að fara til helvítis.
Hitti Svo Christofer Haldemar á msn sem er svíi sem ég kynntist í sölden. Hann hafði ýmislegt að segja frá hér kemur smá samantekt. Hann býr í frankfurt með þýskri unnustu sinn og vinnur á netkaffi. Hann er ekki á leið til ýraks eða afganistan því hann er í frí frá hernum og hefur ekki en fengið anti-terroism þjálfun, (slæmt fyrir hann:) Svo sagði hann margt fleira sem er ekkert fyndið nema að þekkja hann. frekari upplýsinga getið þið bara nálgast hjá mér. En eitt get ég sagt ykkur að hann kunni en að segja haltu kjafti. Jæja skúl túmorróf klukkan 9:30 er farinn í háttin vísindaferð í Ölgerð Eigils á morgun hlakka til og vonast til að hitta sem flesta annaðkvöld. Servus
Lagaði aðeins til í linkunum mínum. Hilma frænka löngu hætt að Blogga og Systir mín að draga sig í hlé svo þannig er það. Vona bara að þeim vegni bara vel í framtíðinni, fæ bara fréttirnar á næsta ættarmóti, ef ég verð á landinu á það til að flýja landið þegar ættarmót eru.
úff helv´tis veður. ég er búinn að rennblotna fjórum sinnum í dag en engin er engin er verri þó hann vökni, en 4 sinnum komm on. ætla ekki meira út í dag. Þurfti annars að illri nauðsyn að komast í búð. það var um þrennt að velja að deyja úr hungri, drukkna eða hreinlega drepast úr kulda. ég hef heyrt að það sé gott að drukkna og vill frekar deyja úr kulda heldur en hungri svo það var bara að herða sig upp klæða sig í sundfötin og synda út í búð. vill illan leik komst ég aftur heim og ætla elda mér dýrindis pizzu í kvöldmatin. þannig fór með sjóferð þá. Megið þið eiga góða kvöldstund.
Þriðjudagur en gaman, það þýðir bóhem líf. Held ég hafi neitt ofmikils kaffi í dag enda óvenju hress seinnipartin og átti mjög góðar umræður í Mannvist 2A sem er í raun svona hagræn landafræði eða ekki spyrja mig kann ekki nógu góða lýsingu á kúrsinum. ég fór semsagt eins og flesta þriðjudaga í vetur niðrí bæ. Fyrst á súfistan að lesa blöð með Gumma og svo með Stulla á Kaffibrennsluna í hádeginu. þar lögðum við plön helgar á borðið og spáðum í spilin. Helgin er orðin nokkuð þétt plönuð svo það fer að vera seint að bóka mig í party héðan af. annars það sem er framundan næstu vikur er væntanleg norðurferð með ásu og skátanum Ég veit samt ekkert hvað systir mín er að gera núna þar sem hún segist vera hætt að blogga. Þannig að engar fleiri fréttir af Skátanum, Fólki með Sirrý, Glæpum, Mígreni, Mat og Kleppi í bráð. Kannski sem betur fer. Svo er Rósa María að kíkka í borgina bráðum Já og svo Árshátíð Fjallsins einhvertíman 8.mars þannig nóg að gera hjá mér annað en að safna hári.
Stulli talaði um á blogginu eftir helgi að ég hafi orðið ástfangin af Kettling. Kettlingurinn hefur nafn og heitir Lotta og vill ég ekkert ræða þetta frekar. En ég meina hvernig er ekki hægt að falla fyrir þessari kisu hún er allvega skárri en Bilbó hennar Rebekku sem er bara pervert. Hér er svo mynd af okkur skötuhjúunum á góðri stund í góðum félagskap.
Dæmi nú hver fyrir sig. Kannski frekar perraleg mynd. Annars er ég Hættur að Reyna við stelpur þær geta komið til mín ekki ósvipað og Lotta gerði takið hana til fyrirmyndar
jæja góð er helgin búin að vera frekar róleg eins og vanalega. ég reif mig upp á rassgatinu í morgun og fór með skátanum hennar Ásu systir í fýluferð í bláfjöll. það tekur óratíma að keyra þarna uppeftir og svo komust við bara eina ferð því það var verið að loka. Jæja fékk allavega fílingin og gott að vita að maður kann þetta en. Núna stendur bara yfir dúndur Apres ski party, vínið flæðir um allt og dúndrandi europopp stemming í loftinu
hahaha búinn að snoða mig það var fyndið vonandi koma myndir af því bráðum á netið!!!! Ég er svo mikið Rebel snoðaður um hávetur. Svoleiðis leik ég á andstæður árstíðanna, Vill koma fram þakklæti til Stulla og allra sem studdu við bakið á mér. Keep on rocking in the free world!
It´s friday i´m in love söng The Cure um árið en ekki get ég sagt að ég sé sammála þeim um það. Ég fór ekki í Rokkparty með Erlu í Gær sem var nota bene haldið á Astró og það var ekkert Frítt áfengi, hvað er að verða að heiminum. nú er ég bara að gera mig ferðabúinn í bæjarferð ætla hitta stulla og undirbúa kvöldið. það er bara svo helvíti kalt úti sem er mjög gott því frekar vil á deyja úr kulda heldur en hita. jæja skemmtið ykkur vel um helgina elskurnar mínar
jæja íslendingar alltaf að standa sig jafn vel í handboltanum, gengur bara betur næst. Kíkti á tónlistarverðlaun radiox og popptíví áðan með öðru auganu og þvílík hörmung. það þarf aðeins að fara hrista uppí þessu rokklífi á íslandi. allir frekar asnalegir þegar þeir tóku við verðlaununum bara takk og ekkert meira. hvað varð um að vera smá málefnalegur eða vera með smá læti. Botnleðja stóð náttúrulega fyrir sínu og rústuðu trommusetti í lok hátíðarinnar, kannski að þetta hafi verið síðasta atriðið hafi spilað eitthvað inní.
skoðaði póstinn minn áðan og ég þarf ekkert að fara í skólan á morgun vei.... maður hefði þá kannski gert eitthvað annað en að hanga heima í kvöld og horfa á sjónvarpið. Annars er erla að reyna fá mig út núna hún var á Rokkhátíðinni, hver veit nema maður sé á leið í alvöru rokk partý og eftirparty, Bíð eftir svari um hvort það sé frítt bús meira um það seinna býst samt ekki við að kíkka út það er skítaveður.
Já æðislegur dagur ég held ég sé farinn að lifa einhverskonar listamanns-lífi það er að segja Hanga á kaffihúsum og gera ekki neitt. nei nei annars ekki listamenn eru ekkert þannig. Ég gat bara ekkert sofnað í nótt og fór bara á kaffihús til að halda mér vakandi fyrst með Gumma bekkjarbróðir og svo Stulla. Ekkert alvarlegt ætla é að vona. Held ég sofni samt fyrir tólf í kvöld eins og ykkur sé ekki sama, Helgin samt nokkurn vegin plönuð ég og Stulli ætlum allavega að Hittast fös eða lau og gera eitthvað sem kemur bara í ljós þegar líða tekur á vikuna. Las Skemmtilega fyrirsögn í DV minnir mig í morgun um að það sé pungaskortur fyrir norðan, las ekki fréttina en kannski spurning um að fara kíkka þó það væri ekki nema til að skella sér á bretti.
Jájájá ekki gert mikið í dag nema vinna. það er alltaf jafn gaman, alltaf fleiri furðufuglar að bætast í hópinn. Nú eru komnir tveir chilebúar einn lithái, þrír mosfellingar en ég er enn og aftur orðin one of a kind Akureyringur sem stendur sjaldnanst undir því nafni. Held að það sé búið að taka mig í sátt en þeir minna mig samt reglulega á það. Ein ástæðan samt að ég varð mæta í vinnuna var sú að ég þurfti að fylla aðeins inn í allar eyðurnar sem urðu til við mesta svarthol í sögu drykkju minnar í gegnum árinn fyrir utan veturinn 2000-2001. Megið ekki miskilja þetta var samt ekkert slæmt. Jæja en ekki öll sagan kominn. Inn í hana fléttuðust kýlí maga keppni míns og Danna (Held að ég hafi skorað hann á hólm) Ælusaga ákveðins einstaklings, þar á meðal ælu uppá 3 á richter skala á barborðið á vegamótum (Ekki ég hehe) en snögg viðbrögð vana ræstingamanna redduðu því. Og margar aðrar róna sögur sem ég vill ekki segja hér vegna virðingar við marga einstaklinga sem komu að þessu mesta djammi janúar mánuðs (ætli ég verði ekki að teljast með). Bingókvöld hjá nemandafélaginu á Föstudaginn held ég beili en aldrei að vita. Maður veit aldrei feit útborgun í nánd kannski maður haldi matarboð eða ættarmót Hver er til í það?
jeminn eini kíkkaði í vínsyndaferð í gær. Flugfélag íslands var fyrir valinu og slagorð þeirra fljúgðu frekar er svo sannarlega einkennandi fyrir þá. jæja eftir ferðina kíkkaði ég stelpunum í partý þar sem ég var lengi eini karlmaðurinn sem var rosa skemmtilegt. svo rættist úr því með komu Gumma. Eftir partíið kíktum við á Björk sem var að spila á sircus. það var svolítið spes að sjá hana þar. Svo fór ég að hitta vinnufélagana sem voru auðvitað á Vegamótum og svo fjarar minnið út. þetta var samt snilldar fyllerí og er ég að sleppa þónokkru í frásögn minni sem ég geri til að skaða ekki sjálfan mig enn frekar. ég er en timbó nenni ekki að skrifa meira.
Fékk lykil orðið mitt að Íslendigabók og það er greinilegt að maður velur sér ekki ættingjana. Eftirtaldir eru Skyldir mér, Erla, Kiddi, Hólmar, Snorri, Arna, Dabbi Odds, Fjölnir Þorgeirsson, Hallbjörn Hjartarsson, And so on. Ég hyggst nú fara að kynnast ættmennum mínum betur og halda reglulega lítil ættarmót þar sem útvöldum ættingjum mínum verður boðið. ef þú vilt koma á ættarmót og ert ekki viss um að vera skyld(ur) mér sendu mér línu og ég læt þig vita hvort þú mátt koma.
Úff ég og þvottavélar. það hafði gengið vel það samband héðan af en áðan þegar ég fór með þvott í vélina sem mér líkaði svo við. þá var hún ekki þar lengur. þar sem áður hafði staði gulleit úr sér gengin iðnaðarþvottavél stóð nú risa silfurlituð maskína sem minnti helst á ískáp. ég gekk varlega að henni því ekki væri ráðleggt að styggja hana og eyddi svo dágóðum tíma til að kynnast henni en ekki var mikið um leiðbeiningar svo ég hafði allan varan á. Jæja fötunum hent inn, borgað, sett þvottaefni, valið kerfi, og sett af stað. þetta gekk nú ágætlega en núna býð ég bara eftir að sjá afraksturinn eftir að hafa ráðfært mig við systur mína um nokkur vafa atriði eins og hitastig, liti fatnaðar, tíma o.s.frv. Þvottur á fötum hefur aldrei verið mín sterkasta hlið verð ég að segja.
Bara að spá hvernig krossgengi USD og EUR hefur áhrif á ferðþjónustu í sumar. helvíti skemmtilegt umræða í gangi í skólanum. Fyndið hvað Reykvíkingar geta vælt mikið ef Frostið fer niður fyrir tveggja stafa tölu, ég hef sjaldan verið eins hress og í dag. Jæja þá kemur fyrsti snjórinn á morgun í Reykjavík ég hlakka til vona að ég finni einhvern sem vill vera svo góður að taka mig alltaf með í fjallið hér í reykjavík sem ég hef ekki séð ennþá, kannski skátin hennar Ásu systur fari einhvertíman í fjallið maður veit ekki.
humm góður dagur fékk útúr síðasta prófinu náði öllu, kíkti í bæinn til að ná í bréf frá mömmu og hitti stulla á kaffihúsi þar sem við ræddum ýmis málefni heimsins yfir fínum blöðum. Var bara að spá hvort það sé ekki í lagi að borða túnfisk sem er búinn að vera opinn í ískáp síðan á fimmtudagin eða miðvikudaginn. jæja nenni ekki að elda ætla bara fá mér pítu, svo ef þið heyrið ekkert frá mér næstu daga þá verð ég á klósettinu
Vei Sunnudagar uppháhalds dagarnir mínir svokallaðir þynnku dagar. Gærkvöldið gekk vel strákarnir voru stilltir og ekkert vesen að mig minnir. Skellti mér í bíó áðan með sigga frænda. myndin sem var fyrir valinu var 8mile fín ræma ég og siggi elskum sko eminem og okkur finnst hann eiga að fá óskarsverðlaunin fyrir leik sinn. nú er það bara Jezt odre nie, zeit ist Geld. sunnudagsmyndin á Rúv um gamlar konur sem ræna banka rosa sniðugt. Engin skóli á morgun nema fyrr en klukkan 17 svo mánudagar eru líka frekar leiðinlegir dagar í mínu lífi verð að finna mér áhugamál sem tengist ekki snjó einhverjar hugmyndir?
Je kominn heim í helgarfrí fór að vinna í morgun klukkan átta það var bara óvenju skemmtilegt, mikil læti og fjör. Gekk samt erfiðlega að keyra í vinnuna í morgun sökum þreytu og því að ég var búinn að gleyma umferðamenningunni í þessari borg á þessu yndislege fallega degi. nú er bara kvöldið framundan Stulli og Snorri kíkka í mat eða Stulli sér örugglega um að elda ef ég þekki hann rétt svo ætlum við bara að chilla drekka bjór og ef til vill kíkka út á lífið. Held að það sé nú samt ekkert að gerast en síðan hvenar hefur það stoppað mig. Mundi samt alveg vilja vera núna á bretti í Hlíðarfjalli eða með fjölskyldunni minni útí sveit að leika mér á snjósleða eða nýja dótinu hans Muggs sem hann var að monta sig af í Nýjasta tölublaði Magasín.
jæjs skólinn búinn í dag og ég ætla bara að fara vinna veit ekki hvort það verður gert mikið í kvöld nennti ekki í vísindaferð sem er frekar óeðlilegt af mér. Annað kvöld þarf ég samt að passa. strákurinn sem ég þarf að passa heitir Stulli og hver veit nema maður kíkki eitthvað niðrí bæ með honum. Ég þarf að endurhlaða þvottakortið mitt en nenni ekki að fara þangað svo það verður ekkert þvegið fyrr en í næstu viku en ekki er vanþörf á því. Þetta er það sem er svo yndislegt við að vera einbúi maður þarf ekkert ef maður ekki vill, fara útúr húsi nema kannski í búð og svoleiðis. Samt verður maður að hitta fólk reglulega eða allavega geri ég það til að halda geðheilsunni og til að detta í það
Eftir Veru mína í aðferðum2 í HÍ áðan hef ég komist að því að best sé að hafa bekkin eða áfangan kynskiptan, þetta á við fleiri fög. Hverjir eru sammála?
Eitt sem kannski fáir vita þá á ég það til að dreyma þvílíka steypu svona reglulega. áðan dreymdi mig að ása systir væri að passa tvo hljómsveitarmeðlimi Travis á meðan þeir dvöldu hér á landi. Draumurinn gerðist aðallega á akureyri þar sem Ása ætlaði að fara með Travis menn á skautadiskótek sem ég var ekki alveg að fíla, En svo í endan horfði ég á Travisliðmenn fara í snjókast við 200 leikskólakrakka hér fyrir neðan íbúðina mína á meðan þeir skutu myndband. Ég sat bara uppí glugga og horfði á. Svo þegar ég vaknaði var geðveikur hávaði í krökkunum smá snjór en engir Travis menn. nú er komið að búðarferð svo skóli klukkan 14:45
Tókst að sofa yfir mig allan morgunin. vaknaði svona hálf 12. frekar skrítið stillti klukkuna klukkan 7:15 og fór ekki seint að sofa. Held að þetta sé örugglega útaf því´að ég var að hlusta á Beastie Boys Anthology, the sound of science og sofnaði út frá því. Helvíti góður diskur sem ég var búinn að gleyma að ég ætti. Hann er því orðinn uppáhalds hlustá á þegar maður fer að sofa diskurinn minn fokk Sigur-rós eða eitthvað rólegt. Held líka að maður dreymi betur ef maður hlustar á ´Beastie Boys eða eitthvað álíka þegar maður leggst til hvílu. lög eins og Sabotage, brass monkey, time for livin og Egg raid on Mojo veita mér fullkomna öryggiskennd og bera mig inn í draumaheiminn.
Svo nú ætla ég bara að kíkka í vinnuna sem er alltaf jafn hressandi líka. langaði samt í búð í dag en ég held að Ása sys sé ekki jarðtengd þessa dagana eftir að hafa endurheimt skátan sinn úr klóm hryðjuverkamanna í Tælandi
ég er að verða brjálaður á skipulagsleysi innan Háskóla Íslands ekki nóg með að ég er ekki búin að fá útúr þremur prófum þá er ég búinn að fá nýja stundatöflu með á svona tveggjadaga fresti eða þrjár talsins. þetta hefur verið mjög pirrandi og það gerði lokaútslagið í dag þegar ég fór í rekstrarfræði tíma sem var í raun allt í lagi ef við hefðum ekki komið að minnstu stofu í Háskólabíó í svona 70manna hóp. en það reddaðist að lokum. vona að þetta fari nú að skána veit samt ekki enþá hvort það sé æfingatími í dag í mannvist 2A.
Sá annars skemmtilega frétt á stöð2 í gær um íslenskan sjómann sem ætlaði til Íraks í næsta mánuði til að vera svona Human shield fyrir helstu skotmörk bandamanna. fékk mann til að hugsa hvað fólk hefur fjörugt ímyndunarafl nú á tímum, eða kannski bara ég því mér fannst þetta frekar fyndið.
Já maður er búinn að vera einstaklega latur að blogga þessa dagan en trúið mér það hefur ekki verið lítið til að skrifa um. ég og Kiddi Horfðum annars heillengi á the Gospel channel á Sunnudaginn og grétum af hlátri ég hef bara ekki fengið svona hláturskrampa í háans herra. Ég fer örugglega beina leið til helvítis en það er allt í lagi því ef þetta fólk verður þarna uppi væri ég ekki að meika það að halda í mér hlátrinum. Well nenni ekki að blogga meira eitthvað sem ég er að gleyma já og til hamingju með afmælið Arna.
jæja þá er maður kominn heim í hellinn. fór í skólan og kynntist nýjum kennurum þeir eru bara fínir en kannski voru þeir bara að reyna að heilla mann svona í byrjun annar. svo fór ég að bóna ekki langt frá heimkynnum mínum. Ekki nóg að maður vakni við leikskólabörn á hverjum degi þá þarf maður að bóna undir rassgatið á þeim líka. nú er bara chill ég er drulluþreyttur stór dagur framundan, Kiddi og hólmar að koma er eitthvað að gerast annaðkvöld?
Jæja þá er maður kominn í borgina og engin tók á móti mér nema risa fjall af fréttablöðum og reikningum ekki amalegt það. kíkka í skóla á morgun tími klukkan hálf þrjú það verður víst þannig á fimmtudögum í vetur. Svo er það bara helgin sem maður er búin að bíða eftir allt árið, afmæli Erlu og Örnu það verður sko fjölmennt þangað þó að ég hafi ekki fengið boðskort